Kominn júlí?
Heyrðu jú:D
Ég og Halldóra fluttum saman í Árbæinn 1.júní með Tuma litla tígur ;) sætasti óþekktaranginn. Nánast alveg búnar að koma okkur fyrir.. það vantar bara screen fyrir herbergið hennar Halldóru og sófaborð.. þá ættum við að vera set :D jújú svona hillur og eitthvað dóterí á eftir að koma fyrir en það er bara seinni tíma vandamál. We got all we need ;)
Svo er ég búin að ákveða að skella mér í kvöldskóla í haust :) nenni ekki að hanga yfir þessu endalaust! Vera dugleg, safna pening og fara að hætta þessu rugli :) (ekki alfarið að sjálfsögðu
)Og enn eitt... (ég hef víst eitthvað að segja...) Mamma og pabbi að flytja suður! það verður soldið asnalegt að einhver annar búi í uppeldishúsinu manns en ég vona bara að þetta verði gott fyrir þau! Öll fjölskyldan náttúrulega fyrir sunnan, barnabörnin og svona :D
AnyWho
Núna er ég búin :)
Toodles
Bangsa
Ekkert
Mér finnst hjartað mitt mölbrotið.. ég reyni og reyni að brosa bara og láta það ekki há mér en þetta er svo sárt.. og ég veit ekki hvað ég á að gera við það. Ég er búin með plástrana og heftin og veit ekki um saumnál. Vantar eiginlega bara að taka það úr og geyma það einhverstaðar þar sem ég kemst ekki í það.
Og það er frekar ömurlegt að hugsa til þess að ég er á nákvæmlega sama stað og ég var þegar ég flutti suður.. þa er ekkert breytt nema staðsetningin.. sama hvað ég reyni þá gerist ekkert og ég gefst upp.. eða þá að ég neita að gefast upp en það er ALLTAF lost cause... afhverju get ég ekki bara fengið smá.. bara pínu.. mig vantar það!

En það ætlar ekkert að ganga... og ég veit að ég er að senda þessa neikvæðni sjálf út í heiminn en hvað get ég gert þegar ég er búin að reyna hitt?? Til hvers? Svo skilur mig enginn þó ég reyni þannig ég hef engann að tala við um allt saman og ég snappa bara eitthvað á blogginu mínu..
Ég þarf bara lítið bein.. bara lítið.. sem togar mig pínu áfram.. mig vantar bara smá sól í líf mitt..
Ég dreg mig út úr hópnum og loka mig inni í sjálfri mér því ég vil ekki íþyngja öllum með þessu endalausa væli.. læknirinn gerir ekkert og ég er bara týnd... eins og þetta blogg.. löngu týnt.
Kannski babbla ég eikkerju inn seinna...
Gleðilegt nýtt ár?
Jæja þá er 2007 liðið og 2008 runnið upp, árið sem ég verð gömul
Ég held að þetta verði bara ágætis ár.. þó að í byrjun þess hafi ég flutt inn á sófann hjá ómari og ínu en það reddast! þarf bara að finna íbúð þar sem má vera með hund
vá... ég opnaði þennan glugga alveg með helling að segja en svo er þetta bara allt saman dottið út![]()
Jólin voru bara ágæt hjá mér. Reyndar þurfti ég að fara að vinna á jóladagskcöld og alveg fram á nýársmorgun. En það var alveg ágætt. Fékk gott að borða hjá Eddu og Einari og svo voru opnaðir pakkar. Fékk 3 bækur!! Loksins er fólk farið að hlusta á mig ;) svo fékk ég þessi líka æðislegu beljunáttföt frá Ómari og Ínu ;) alveg æðisleg!!!! svo voru það rúmföt og handklæði og ég meira að segja gaf sjálfri mér síma í afmælis/jólagjöf:) Ég er samt algjör rati! Á eftir að skila 2 jólagjöfum af mér :S en það verður klárað í dag:D
Áramótin voru líka bara fín :) Fór í mat til Gísla og Guggu til hálf8 og svo brunaði ég í vinnuna! Þar fékk ég meira gott að borða (það átti að svæfa mig greinilega!!) svo horfði ég bara á flugelda sirkusinn út um gluggann og hafði það notalegt.
Ég er ekki með neitt áramótaheit.. mér þykir þau ekki sniðug. Maður á bara að ákveða einhverjar breytingar svona 2. eða 3. jan. þá er ekki eins mikil pressa að klúðra hlutunum ekki og þá gengur mikið betur:P
ákvörðun mín er samt að fara að mæta í ræktina og lifa heilbrigðara lífi :D
jamm og já já... ég held það verði ekki meira í bili!
jú og ég ætla að reyna að setja meira hérna inn á þessu ári, en hver hefur ekki ákveðið það ;)
Toodles
the big city
jæja.. ekki mikið að gerast hjá mér þessa dagana svosem, er að flytja suður á föstudaginn, hætti við að fara í skóla semsagt og ætla að fara að vinna einhverstaðar í grafarvoginum. Kannski maður skelli sér í skóla eftir áramót það verður bara að koma í ljós. Ég er einn af þessum eilífðarstúdentum. Ekki gott ekki gott. VOna að það verði gott að vera í reykjavík, vona að það hjálpi mér að hreinsa hugann og finna nýjar leiðir. Ég þarf á hreinni byrjun að halda. Samt náttla leiðinlegt að kveðja ísó en það hjálpar að það er í raun og eru enginn eftir hérna sem ég er það close to. Mun náttla sakna rugludallanna sem eftir verða en það bíður mín held ég meira fyrir sunnan. Æji ég er samt ekkert að pæla í framtíðinni núna, here and now er alveg ágætt eins og er.
EN já ég rétt kíkti bara hérna inn, er að fara að vinna það sem ég á eftir af sumarvinnunni og svo sjáumst við bara í borginni.
Toodles
Bangsa out
.... *snap*
Ég stend í mestu makindum inni á klósetti að tannbursta mig í morgun og vitiði hvað gerðist? vitiði???
ÞAÐ FLÆDDI UPP ÚR RÆSINU!!!!
Reyndar smá vandró. Ég blótaði svo hátt að Óli heyrði það upp
En jæja pæja. Ég þarf víst að vinna líka þannig að ég kveð bara í bili!
Bangsakveðjur
Þórdís Bangsa
klósettið virkar!
Bangsakveðjur
Toodles!
ARG!!!!!
AAAllavegana! Ég er hinsvegar að verða geðveik út af öðrum hlut núna.... BÚÁLFUM!!
Ég hata þá og ég vil að þeir deyji! Ég kom inn til mín kl. u.þ.b. hálf10 í gærkvöldi með poka með tveimur hlutum í. Ég skelli mér í sófann að glápa á sjómmið, svo að skafa af mér skítinn og loks ætla ég að ná í pokann og nota aðra vöruna (tannkrem! fyrir dónalega fólkið) og það er HORFIÐ!!! núna meira en sólarhring síðar er ég b úin að umturna íbúðinni ÞRISVAR! og ég finn ekki þennan helvítis pokaræfil!! og núna er ég orðin svo snarbiluð að ég mun aldrei finna hann! Meiri líkur á að Elvis banki upp á hjá mér tvítugur og biðji mín! EKKI að fara að ske!!
Ég er svo reið núna að ef ég hitti Búálf þá á ég eftir að slíta hann í sundur og borða úr honum hjartað þannig að þeir eru ekkert að fara að sýna sig, en ef einhver gæti verið svo yndislegur að koma til þeirra þeim skilaboðum að ég þarf á þessum hlutum að halda (því að ég ætla ekki að kaupa nýtt bara til að finna hlutinn um leið og ég kem heim ) og biðja þá vinsamlegast um að skila þeim og ég skal hætta að hata þá og hvísla að öllum köttum sem ég sé að myrða þá "on sight". Það var væri Mjög MJÖG vel þegið!!!!!:D
Bangsa bitra kveður!
Toodles
Dísús!!!
ohh... urr!! garg! afhverju þarf fólk alltaf að vera svona heimskt í þáttum!!! ef að illska manneskju er í hausnum.... ÞÁ HEGGURU AF HENNI HAUSINN!!!!! það er eki nóg að stinga hana bara í magann!!! það er hægt að jafna sig á því.. ekki af HAUSINN er ekki lengur fastur við líkamann þinn!! ugh.. ég er alveg búin að fá nóg af þessum heimskulegu heroes þáttum! og eiginlega bara öllum þáttum yfir höfuð. Það er alltaf viljandi gert hlutina vitlaust svo að það þurfi að koma annar þáttur eða þáttaröð til að taka á villunni sem var gerð! afhverju er ekki bara hægt að leggja metnað í hverja og eina þáttaröð og fá þá bara fleiri hugmyndir! Þetta er allt orðið svo teygt og þunnt og ömurlegt! Rins og með one tree hil og oc og svoleiðis þætti, að ég tali nú ekki um freyðandi sápuóperur! Þættirnir eru ekki cancelaðir fyrr en allir eru búnir að vera með öllum, einhver hefu orðið ólétt og einhver dáið og/eða verið myrtur. og ef allir eru búnir að vera með öllum og fólk vill ennþá meira þá er bara að bæta og bæta og bæta persónum við!!
Blugh.. allavegana þá er ég ekkert mikið sjónvarps fan orðin og legg hér með til að fólk fari að sniðganga þessa ömurlega hallærislegu þætti og myndir! (neibb ekki hægt, of mikið af heimsku fólki!!)
Anywho þá er víst komið sumar (7,9,13) og það er alveg yndislegt að geta loks sest út í garð, eða lagst öllu heldur þar sem ég á engin garðhúsgögn, og lesið bók eða bara sólað sig! *stuna*
Þetta verður samt sem áður allt og sumt í þetta sinnið!
Toodles
Bangsastelpan
hummzum..
jæja nú er sumarið gengið í garð með sína slyddu og vont veður... ? hljómar ekki alveg rétt en svona er þetta nú.
kemur sumar koma próf.. já þau ganga nú í garð líka eins og allt annað! það er bara vonandi að manni gangi vel! tveir skólar tvöföld próf.. voðalega er ég eitthvað well spoken í þessari byrjun.
En eins og kannski flest ykkar sem lesa þetta vita þá lést hann afi minn aðfaranótt 3.apríl. fór eins og ég myndi vilja, lognaðist bara út af. Það var bara að skella á mér í gær að hann væri í alvörunni farinn. Sá hann svo sjaldan að maður bjóst alveg eins við því að koma suður og fara í heimsókn til ömmu og afa og þar sæti afi í stólnum sínum að reykja prince:) en það verður víst ekki aftur.
Bjarni Ásmundur Gíslason var yndislegur maður og ég mun sakna hans svo sárt! Þegar maður gisti í Hvassaleitinu var hann alltaf síðastur í rúmið og þegar maður kom fram seint á kvöldin var svo notalegt að koma inn í stofu og spjalla við afa. Plataði mann næstum alltaf í kökubita og mjólkurglas þó að maður væri búinn að bursta:P Hjarta mitt fylgir samt ömmu núna. Þessi litli stuðbolti sem var ennþá sem hún væri 20ára, ég hef aldrei séð hana svona ... tóma. Ég get ekki lýst því en maður sá bara hvað hún var ..... í augunum. Gæti ekki ímyndað mér að fara að sofa ein eftir 50-60 ára hjónaband. En ég veit að hún á eftir að hressast, maður jafnar sig kannski aldrei en maður lærir að lifa með því. Hún er sterkasta kona sem ég veit um allavegana:)
Lag vikunnar - Kvöldsigling
HA???????
Er fólk hérna í landinu í alvörunni svona heimskt að leyfa vændi?? Jájá svo virðist nú vera að þessir snillingar sem stjórna landinu okkar hafa nú lögleytt vændi!
Ég má standa úti á horni og selja mig og það hver sem er getur keypt mig! Það er ekkert ólöglegt við það?? Og hvað á þetta eftir að hafa í för með sér? Öll mannsalsstarfsemin úti í heimi á eftir að færa sig hingað og þessar aumingja stelpur sem ennþá eru að láta plata sig út í þetta eiga eftir að verða færðar hingað! Og enginn á eftir að kippa sér upp við það! Ég meina miðað við það hvað er auðvelt að koma fólki hingað til lands sem ekki eru þrælar(þannig séð...) það verður allt morandi! Ísland hefur ekki á sér orð fyrir að vera hættulegt.. að stelpur séu plataðar þangað og þess vegna verður ekkert hættumerki. ugh.. ég er svo reið að ég get ekki einu sinni skrifað rétt... þið sem skiljið þetta, flott.. aðrir verða bara að kynna sér málið betur!
Helvítis Ísland! Skítapleis!

